Nokkur gullkorn höfð eftir byggingameistara í Reykjavík
· Það sem aldrei hefur skeð, getur alltaf skeð aftur.
· Ég hrópa höndum!
· Við skulum hafa augun á bak við eyrun.
· Það er enginn maður mannlegur.
· Við skulum tala saman milli tveggja augna.
· Við skulum slá tvær flugur í sama höfuðið.
· Við skulum blása lífinu úr bílastæðinu.
· Viltu finna fyrir mig hvað skórinn er rýmstur.
· Þetta er það sem ég hef alltaf verið að segja, en hef aldrei
viljað tala um það.
· Það getur vel verið að ég hafi sagt það, en ég meinti það ekki.
· Það er ekkert launungarmál að við erum illa
kranamannamannaðir.
· Ég hef engar teikningar séð nýrri en þær gömlu.
· Bjarni hefði átt að stjórna smiðunum með harðri egg.
· Við verðum að forða hættunum.Ef við gerðum einhverja
vitleysu, þá er ég hræddur um að kæmi haukur úr horni.
· Það er verið að gera mýflugu úr úlfaldanum.
· Við skulum bretta upp höndunum.
· Við skulum ráða alla verkamennina, sem geta haldið höndum.
· Ég er gagndofa yfir þessum tímaskriftum.
· Það er staðreynd að við höfum fiskað of mikið af rollukjöti.
· Við höfum oft gert álréttskeiðar úr krossviði.
· Það er ekki víst að smiðirnir verði svo brattir þegar út í
hólmann er komið.
· Við söfnum öllu ljósnæmu, sem við heyrum á svæðinu.
· Það er eins og verið sé að skvetta eldi á bensínið.
· Við verðum að finna leið út úr gamla fólkinu.
· Ég hef ekki séð neitt hringt í dag.
· Þetta er í fyrsta sinn sem þetta bilar í annað sinn.
· Þvoðu ljósin fyrir mig, ég sé svo lítið út.
· Sástu steypubílinn, hann var alveg sneysatómur.
· Róm var ekki byggð á hverjum degi.
· Við stöndum á krossfótum.
· Við skutum vitlausan hest.
· Það sér ekki dögg á vatni.
· Veistu ekki áð krókurinn er veikasti hlekkurinn í keðjunni.
· Það var rúndukraftur í honum.
· Við flytjum bara gáminn í tómri ferð til baka.
· Hann hættir á föstudaginn. Hann réði sig ekkert að ráði.
· Nú verðum við að taka upp rögg.
· Við erum að sækja okkur ofaní skaptið.Við verðum að
hártoga þetta með krananum.
· Það sem hugurinn vill hanga á spítunni það er ???.
· Ef við einangrum steypuna vel, þá alveg steinstoppar hún.
· Kassinn kemur útúr inní.
· Hann fór með flokk manna, en það fannst ekki nema einn.
· Er nokkuð að gera nema skafa plöturnar. Ég meina fyrir
utan allt hitt.
· Þetta er ekkert vandamál. Járnamennirnir manna bara
flokkinn með mönnum.
· Ég held það heyrist eitthvað illa í talstöðinni hjá mér.
Ég heyrði einhvern óm eða allavega ímyndaði ég mér að
þú værir að svara.
· Ég er vel borvélavélaður.
· Þeir eru svo samrýmdir að það fer ekki slefan á milli þeirra.
· Það er verið að spila hendur fram.
· Hann fer í kringum það eins og heitur köttur.
· Það sagði einhver að þetta væri þrígengisvél.
· Það getur verið að við fáum aðra horreim í kvöld, en
hún er niður í kjallara.
· Við bíðum í öngþveiti eftir járnamönnunum.
· Fannstu eitthvað út úr mér?
· Það er ekkert varið í þetta hús. Það er ekkert nema
innveggir og útveggir.
· Sjávarmálið er þarna sem gámurinn flýtur.
· Það væri gaman að gera þetta í góðra manna tómi.
· Ég hafði hugsað mér að í steypunni væri einn smiður
og einn verkamaður, eða öfugt.
· Beiðnin verður að vera eyrnamerkt.
· Við dældum Atlndshafinu út í sjó í gærkvöldi.
· Yfirhöndin reykir aðeins í skúrnum.
· Þú getur alveg fengið að tala við hann. Ég er með
gangandi síma.
· Ég verð bara með einnota blikkara í verkinu.
· Það hlýtur að koma að því að þetta hús fari að minnka.
· Múrarinn stoppar svo stutt við, að það liggur við að hann
sletti steypunni út um gluggann á bílnum sínum um leið
og hann keyrir framhjá, og svo hittir
hann ekki einu sinni í holuna.
· Hann leitar logandi ljósum að verkamönnum.
· (Hann sá naglaspítu og sagði víð Svíann) "Pass på, ikke
gott for lappirnar"
· Maður verður nú að lifa annan hvern dag.
· Það getur ekki verið að það vanti steypu. Ég reiknaði hana
alveg upp á gráðu.
· Hvar ætlar þú að fá laun fyrir að taka sólarhæðina.
· Þú hefðir getað sagt þetta með einu handtaki.
· Er þetta rútan sem smakkaði vínið?
· Það sást í plöturnar af sjálfsdáðum.
· Ég renni stundum við og kíki á ykkur þegar þið eruð farnir.
· Það eru 6 verkamenn og 6 smiðir hjá mér og það eru næstum
einn verkamaður á hvern smið.
· Smiðurinn mætti á mánudaginn eftir barnsburð.
· Þetta er aukaverk hjá mér svo ég verð lítið við þarna, mest lagi
einn þriðja úr fæti.
· Það er víst rigning hjá mér, en hún er allavega hvít.
· Veggirnir eru hallandi og horn uppúr þeim, svo þeir eru eiginlega
eins og tóftir.
· Ég ætla að safna saman í einn smið og senda í verkið á mánudaginn.
· Ég get lítið sinnt aukaverkinu, þú verður að skilja það að ég er með
aðalfótinn í mínu verki.
· Hann kom labbandi í vinnuna gangandi í níu.
· Þessir smiðir ríða ekki háum hesti hjá mér.
· Við skulum sjá hvernig landið leggst.
· Það er frí hjá öllum. Það er 1. maí um allt land.
· Þetta kemur nú manni í opna spjöldu.
· Maður verður eins og barinn rass í framan eftir þetta.
· Þegar timbrið losnar hjá mér, þá á ég nóg af standandi 1x4
· Farið að koma ykkur út úr skúrnum. Við skulum drífa daginn af.
· Það kom í ljós byrjunarleikar í verkinu.
· Þessi þrír múrarar sem eru í húsinu eru kannske ekki nema tveir.
· Hefurðu nokkuð tékkað á kíkirinn síða þú tékkaðir hann síðast?
· Verkið er ekki lengra heldur en þar sem endapunkturinn nær.
· Þetta var pantað í gær, en er ekki komið ennþá, viku seinna.
· Það er yfirmannað af verkamönnum
· Það er óþarfi að gera flókna hluti einfalda.
· Það er þægilegt að gifta sig milli klukkan fjögur á föstudögum.
· Þeir lifa alveg í skinninu, já þeir lifa alveg í skinninu.
· Þessar tímaskriftir eru bara skortur á stjórnleysi.
· Áin rennur alveg upp að Reykholti.
· Árnar eru alveg kolmórauðar, svo kemur þessi alveg jökultær.
· Ég er í mikilli mannahörg.
· Þú veður að athuga að láréttu spíturnar verða að vera láréttar.
· Hann var ekki rekinn. Hann fékk bara uppsagnarbréfið í pósti.
· Ég leitaði að þessu alveg eins og saumnál.
· Efnið sem ég pantaði hjá þér í gær er ekki ennþá komið og ég
talaði við
þig í morgun, eða ætlaði allavega að gera það.
· Það komu bara tveir stigar upp í ljós í morgun.
· Þú verður að láta pressuna hoppa.
· Á þessum vinnustað er verkamönnum ekki borgað fyrir að hugsa.
· Þetta er þröskuhálsinn í verkinu.
· Það borgar sig ekki að klippa þjórfé sér við nögl.
· Ég er alltaf hress á morgnana nema ég hafi verið æstur niður.
· Menn ganga í ljómandi ljósi og leita að þessu.
· Það var gengið undir Pontiusi og Pílatusi.
· Þeir eru komnir upp á gafl hjá mér þessir undirverktakar.
· Þeir verða eins og heilaþvegnir fiskar eftir þetta.
· Þú verður að athuga að ef þú labbar svona lengi og leitar að
þessu þá bara styttast á þér lappirnar.