.

• Nov. 22, 2005 -

Nokkur gullkorn

Nokkur gullkorn höfð eftir byggingameistara í Reykjavík 

 

·        Það sem aldrei hefur skeð, getur alltaf skeð aftur.

·        Ég hrópa höndum!

·        Við skulum hafa augun á bak við eyrun.

·        Það er enginn maður mannlegur.

·        Við skulum tala saman milli tveggja augna.

·        Við skulum slá tvær flugur í sama höfuðið.

·        Við skulum blása lífinu úr bílastæðinu.

·        Viltu finna fyrir mig hvað skórinn er rýmstur.

·        Þetta er það sem ég hef alltaf verið að segja, en hef aldrei

     viljað tala um það.

·        Það getur vel verið að ég hafi sagt það, en ég meinti það ekki.

·        Það er ekkert launungarmál að við erum illa

     kranamannamannaðir.

·        Ég hef engar teikningar séð nýrri en þær gömlu.

·        Bjarni hefði átt að stjórna smiðunum með harðri egg.

·        Við verðum að forða hættunum.Ef við gerðum einhverja

     vitleysu, þá er ég hræddur um að kæmi haukur úr horni.

·        Það er verið að gera mýflugu úr úlfaldanum.

·        Við skulum bretta upp höndunum.

·        Við skulum ráða alla verkamennina, sem geta haldið höndum.

·        Ég er gagndofa yfir þessum tímaskriftum.

·        Það er staðreynd að við höfum fiskað of mikið af rollukjöti.

·        Við höfum oft gert álréttskeiðar úr krossviði.

·        Það er ekki víst að smiðirnir verði svo brattir þegar út í

     hólmann er komið.

·        Við söfnum öllu ljósnæmu, sem við heyrum á svæðinu.

·        Það er eins og verið sé að skvetta eldi á bensínið.

·        Við verðum að finna leið út úr gamla fólkinu.

·        Ég hef ekki séð neitt hringt í dag.

·        Þetta er í fyrsta sinn sem þetta bilar í annað sinn.

·        Þvoðu ljósin fyrir mig, ég sé svo lítið út.

·        Sástu steypubílinn, hann var alveg sneysatómur.

·        Róm var ekki byggð á hverjum degi.

·        Við stöndum á krossfótum.

·        Við skutum vitlausan hest.

·        Það sér ekki dögg á vatni.

·        Veistu ekki áð krókurinn er veikasti hlekkurinn í keðjunni.

·        Það var rúndukraftur í honum.

·        Við flytjum bara gáminn í tómri ferð til baka.

·        Hann hættir á föstudaginn. Hann réði sig ekkert að ráði.

·        Nú verðum við að taka upp rögg.

·        Við erum að sækja okkur ofaní skaptið.Við verðum að

     hártoga þetta með krananum.

·        Það sem hugurinn vill hanga á spítunni það er ???.

·        Ef við einangrum steypuna vel, þá alveg steinstoppar hún.

·        Kassinn kemur útúr inní.

·        Hann fór með flokk manna, en það fannst ekki nema einn.

·        Er nokkuð að gera nema skafa plöturnar. Ég meina fyrir

     utan allt hitt.

·        Þetta er ekkert vandamál. Járnamennirnir manna bara

     flokkinn með mönnum.

·        Ég held það heyrist eitthvað illa í talstöðinni hjá mér.

     Ég heyrði einhvern óm eða allavega ímyndaði ég mér að

     þú værir að svara.

·        Ég er vel borvélavélaður.

·        Þeir eru svo samrýmdir að það fer ekki slefan á milli þeirra.

·        Það er verið að spila hendur fram.

·        Hann fer í kringum það eins og heitur köttur.

·        Það sagði einhver að þetta væri þrígengisvél.

·        Það getur verið að við fáum aðra horreim í kvöld, en

     hún er niður í kjallara.

·        Við bíðum í öngþveiti eftir járnamönnunum.

·        Fannstu eitthvað út úr mér?

·        Það er ekkert varið í þetta hús. Það er ekkert nema

     innveggir og útveggir.

·        Sjávarmálið er þarna sem gámurinn flýtur.

·        Það væri gaman að gera þetta í góðra manna tómi.

·        Ég hafði hugsað mér að í steypunni væri einn smiður

     og einn verkamaður, eða öfugt.

·        Beiðnin verður að vera eyrnamerkt.

·        Við dældum Atlndshafinu út í sjó í gærkvöldi.

·        Yfirhöndin reykir aðeins í skúrnum.

·        Þú getur alveg fengið að tala við hann. Ég er með

     gangandi síma.

·        Ég verð bara með einnota blikkara í verkinu.

·        Það hlýtur að koma að því að þetta hús fari að minnka.

·        Múrarinn stoppar svo stutt við, að það liggur við að hann

     sletti steypunni út um gluggann á bílnum sínum um leið

     og hann keyrir framhjá, og svo hittir

      hann ekki einu sinni í holuna.

·        Hann leitar logandi ljósum að verkamönnum.

·        (Hann sá naglaspítu og sagði víð Svíann) "Pass på, ikke

     gott for lappirnar"

·        Maður verður nú að lifa annan hvern dag.

·        Það getur ekki verið að það vanti steypu. Ég reiknaði hana

     alveg upp á gráðu.

·        Hvar ætlar þú að fá laun fyrir að taka sólarhæðina.

·        Þú hefðir getað sagt þetta með einu handtaki.

·        Er þetta rútan sem smakkaði vínið?

·        Það sást í plöturnar af sjálfsdáðum.

·        Ég renni stundum við og kíki á ykkur þegar þið eruð farnir.

·        Það eru 6 verkamenn og 6 smiðir hjá mér og það eru næstum

     einn verkamaður á hvern smið.

·        Smiðurinn mætti á mánudaginn eftir barnsburð.

·        Þetta er aukaverk hjá mér svo ég verð lítið við þarna, mest lagi

     einn þriðja úr fæti.

·        Það er víst rigning hjá mér, en hún er allavega hvít.

·        Veggirnir eru hallandi og horn uppúr þeim, svo þeir eru eiginlega

     eins og tóftir.

·        Ég ætla að safna saman í einn smið og senda í verkið á mánudaginn.

·        Ég get lítið sinnt aukaverkinu, þú verður að skilja það að ég er með

     aðalfótinn í mínu verki.

·        Hann kom labbandi í vinnuna gangandi í níu.

·        Þessir smiðir ríða ekki háum hesti hjá mér.

·        Við skulum sjá hvernig landið leggst.

·        Það er frí hjá öllum. Það er 1. maí um allt land.

·        Þetta kemur nú manni í opna spjöldu.

·        Maður verður eins og barinn rass í framan eftir þetta.

·        Þegar timbrið losnar hjá mér, þá á ég nóg af standandi 1x4

·        Farið að koma ykkur út úr skúrnum. Við skulum drífa daginn af.

·        Það kom í ljós byrjunarleikar í verkinu.

·        Þessi þrír múrarar sem eru í húsinu eru kannske ekki nema tveir.

·        Hefurðu nokkuð tékkað á kíkirinn síða þú tékkaðir hann síðast?

·        Verkið er ekki lengra heldur en þar sem endapunkturinn nær.

·        Þetta var pantað í gær, en er ekki komið ennþá, viku seinna.

·        Það er yfirmannað af verkamönnum

·        Það er óþarfi að gera flókna hluti einfalda.

·        Það er þægilegt að gifta sig milli klukkan fjögur á föstudögum.

·        Þeir lifa alveg í skinninu, já þeir lifa alveg í skinninu.

·        Þessar tímaskriftir eru bara skortur á stjórnleysi.

·        Áin rennur alveg upp að Reykholti.

·        Árnar eru alveg kolmórauðar, svo kemur þessi alveg jökultær.

·        Ég er í mikilli mannahörg.

·        Þú veður að athuga að láréttu spíturnar verða að vera láréttar.

·        Hann var ekki rekinn. Hann fékk bara uppsagnarbréfið í pósti.

·        Ég leitaði að þessu alveg eins og saumnál.

·        Efnið sem ég pantaði hjá þér í gær er ekki ennþá komið og ég

     talaði við

      þig í morgun, eða ætlaði allavega að gera það.

·        Það komu bara tveir stigar upp í ljós í morgun.

·        Þú verður að láta pressuna hoppa.

·        Á þessum vinnustað er verkamönnum ekki borgað fyrir að hugsa.

·        Þetta er þröskuhálsinn í verkinu.

·        Það borgar sig ekki að klippa þjórfé sér við nögl.

·        Ég er alltaf hress á morgnana nema ég hafi verið æstur niður.

·        Menn ganga í ljómandi ljósi og leita að þessu.

·        Það var gengið undir Pontiusi og Pílatusi.

·        Þeir eru komnir upp á gafl hjá mér þessir undirverktakar.

·        Þeir verða eins og heilaþvegnir fiskar eftir þetta.

·        Þú verður að athuga að ef þú labbar svona lengi og leitar að

     þessu þá bara styttast á þér lappirnar.


About Me

. .

Recent Posts

Untitled
Untitled

Links

Home
View my profile
Archives
Email Me
Entry 2 of 2
Last Page | Next Page

Find Other Friends

Search our personals:
For
Between the ages of:
&
State/Province
Country

Affiliate Programs Articles and news on affiliate program and internet marketing Directorio Web

WeblogManiacs Sponsors:
Dir Plastics - Sanding Machinery - Insurance Worldwide - US Insurance- Insurance - Web cams - Directorio Cirugía - Seguros y reaseguros
Life Insurance News - Life Insurance Articles - Insurance Quotes Articles - Insurance industry - Insurance finder - Refinance News
Cheap Hosting - Asia News - Plasticos - Buscador Web - Internet Directory - Sexualidad - Sexuality - Kamasutra - Kamasutra Español
Dating - Webcams - Tantra - Love and dating - Amor - Sexualidade - Sex and Pleasure - Love and Sexuality - Romance News
Sex Stories - Web Directory - Free Web Links - Sex and Sexuality - Portuguese Directory - Hoteles - Diretorio Seguros - Empréstimos
Namoro - Spanish Links - Serviços no Brasil - Dicas Viagens - Paints for Rubber